top of page
Heilsu- og sálfræðiþjónustan_106.jpg
einstaklingsmedferd_og_radgjof.png

Einstaklingsþjónusta

Við veitum einstaklingsmeðferð og ráðgjöf vegna heilsuuppbyggingar, tilfinningavanda og sálrænna erfiðleika. Við veitum foreldrum ráðgjöf vegna barna og uppeldis sem og pörum sem standa frammi fyrir áskorunum. Einnig sérhæfum við okkur í meðferð áfalla, streitu, kulnunar og langvarandi veikinda. Hjá okkur er sérhæft teymi í greiningu á ADHD og vinnum við með skjólstæðingum okkar í framhaldi af greiningu, að því að efla færni og bjargráð í daglegu lífi til að efla lífsgæði.

Einstaklingsmeðferð og ráðgjöf

Ráðgjöf til foreldra vegna barna og uppeldis

ADHD greiningar og aðrar sérhæfðar greiningar

Ráðgjöf varðandi heilsuuppbyggingu

Hjóna-, para- og fjölskyldumeðferð

Stuðningur vegna áfalla

Meðferð vegna streitu, kulnunar og langvarandi veikinda

Markþjálfun

Handleiðsla stjórnenda og fagmanna

Hefðbundinn tími í einstaklingsmeðferð og ráðgjöf er 50 mínútur. Skjólstæðingar fá góðar móttökur og í fyrsta viðtali er rætt um þarfir og væntingar og ástæðu komu. Fagaðilinn metur vandann og leggur drög að meðferðaráætlun í samráði við skjólstæðing.

Skjólstæðingar okkar þurfa ekki að vera með mótaðar hugmyndir eða ástæður þess að vilja koma til fagaðila. Allir eru velkomnir og í fyrstu viðtölunum er farið yfir það hvað hentar best viðkomandi. 

Verð fyrir viðtöl miðast við mínútufjölda, hægt er að bóka lengd viðtala eftir þörfum hvers og eins. Algengast er að fólk bóki sér 50 mínútur en hægt er að bóka viðtal frá 30-120 mín í senn.

 

  • Verð fyrir 30 mínútur er 12.600 kr. 

  • Verð fyrir 50 mín. viðtal er 21.000 kr.

 

Hægt er að greiða með korti eftir viðtal eða óska eftir greiðsluseðli. Mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði og er þá hægt að framvísa kvittun frá fagaðilum og fá hluta kostnaðar endurgreiddan. 

Best er að láta vita af forföllum í síma eða tölvupósti beint til meðferðaraðilans með að minnsta kosti sólarhrings fyrirvara. Forfallagjald er rukkað ef ekki er látið vita með nægum fyrirvara. Gjaldið er hálfvirði tímans.

Heilsu- og sálfræðiþjónustan_146.jpg
bottom of page