top of page

Skilmálar Heilsu- og sálfræðiþjónustunnar um persónuvernd

Þjónusta Heilsu- og sálfræðiþjónustunnar slf. er háð eftirfarandi skilmálum.

Þegar þú notar vefsíðuna eða kaupir þjónustu samþykkir þú þessa skilmála, vinsamlegast lestu þá vel yfir. Þú getur sent tölvupóst á mottaka@heilsaogsal.is ef þú hefur spurningar um skilmálana. Heilsu- og sálfræðiþjónustan áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum án fyrirvara. Þjónustan er rekin af Heilsu- og sálfræðiþjónustunni slf., kt. 620221-0310, Glerárgötu 34, 600 Akureyri.

 

Heilsu- og sálfræðiþjónustan er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer í tengslum við þjónustuna. Hægt er að hafa samband með því að senda tölvupóst á mottaka@heilsaogsal.is

Notkunarskilmálar

Sérstakir notkunar skilmálar Heilsu- og sálfræðiþjónustunnar. Með því að samþykkja þessa skilmála þá ert þú sem notandi þjónustunnar að veita upplýst samþykki fyrir vinnslu á persónuupplýsingum.
 

Persónuupplýsingar sem safnað er:

Persónugögn eru gögn sem hægt er að tengja við einstaklinga. Heilsu- og sálfræðiþjónustan safnar og vinnur eftirfarandi persónugögn sem hægt er að tengja við þig:

  • Upplýsingar um þig (Aðgangsupplýsingar) fela í sér eftirfarandi upplýsingar: 

    • Nafn

    • Tölvupóst

    • Símanúmer

    • Kennitölu

  • Heilbrigðisupplýsingar (Sjúkraskrá). Samkvæmt lögum um sjúkraskrár nr. 55/2009 skal heilbrigðisstarfsmaður sem fær sjúkling til meðferðar halda sjúkraskrá. Heilbrigðisupplýsingar eru upplýsingar sem verða til við meðferð sjúklings og heilbrigðisstarfsmanns.

  • Greiðsluupplýsingar.
    Heilsu- og sálfræðiþjónustan sér hvorki né geymir kortaupplýsingar hjá sér.

 

Meðhöndlun á persónugögnum

Heilsu- og sálfræðiþjónustan notar persónuupplýsingar þínar eingöngu í þeim tilgangi að efna samning við þig um veitingu ÞJÓNUSTU og til að uppfylla lagaskyldu veitanda heilbrigðisþjónustu að halda sjúkraskrá um meðferðina.

 

Samkvæmt lögum um sjúkraskrár nr.55/2009 er óheimilt að eyða upplýsingum úr sjúkraskrá nema með samþykki landlæknis. Aðrar upplýsingar sem við geymum um þig eru geymdar eins lengi og nauðsyn ber til í þeim tilgangi sem þeirra var aflað. Einstaka upplýsingar geta verið geymdar lengur ef sérstakar reglur gilda t.d. skatta- eða bókhaldslög.

 

Heilsu- og sálfræðiþjónustan getur notast við Köru Connect sem er fjarþjónustukerfi, til að safna og geyma persónugögn. Persónugreinanlegar upplýsingar, ásamt öðrum gögnum, eru dulkóðaðar í gagnagrunni með 256 bita dulkóðun. Öll samskipti milli skjólstæðings og sérfræðings innan Köru eru dulkóðuð með SSL/TLS skírteini.

Tilgangur og heimild til vinnslu persónuupplýsinga

Tilgangur með vinnslu persónuupplýsinga og heimildir til vinnslu til fyrrnefndra gagna er eftirfarandi:

  • Vinnsla á upplýsingum um aðgangsorð og netfang eru nauðsynlegar til að beina skjólstæðingum rétt aðgengi að sérfræðing, geta haft samband við viðkomandi, sent út reikninga eða fylgt eftir meðferð. Heimildin er samþykki þess sem persónuupplýsingarnar eru um (hins skráða) fyrir vinnslunni í þágu eins eða fleiri tiltekinna markmiða.

  • Vinnsla á heilsuupplýsingum (sjúkraskrá) er nauðsynleg til að skrá niður upplýsingar sem snúa að meðferðinni og framgangi meðferðar. Heimildin er samþykki þess sem persónuupplýsingarnar eru um (hins skráða) fyrir vinnslunni í þágu eins eða fleiri tiltekinna markmiða. Einnig veitendum heilbrigðisþjónustu skylt að halda sjúkraskrá og því er vinnsla nauðsynleg til að fullnægja lagaskyldu sem hvílir á þeim sem ákveður vinnsluna (ábyrgðaraðila).

  • Vinnsla á greiðsluupplýsingum er nauðsynleg til að skjólstæðingar geti greitt fyrir þjónustu Heilsu- og sálfræðiþjónustan ef og þegar við á. Heimildin er samþykki þess sem persónuupplýsingarnar eru um (hins skráða) fyrir vinnslunni í þágu eins eða fleiri tiltekinna markmiða.

Rekstur heilbrigðisþjónustu
Heilsu- og sálfræðiþjónustan er rekin með leyfi frá Embætti landlæknis. Allir veitendur heilbrigðisþjónustu hjá Heilsu- og sálfræðiþjónustunni eru með löggilt starfsleyfi frá Embætti landlæknis.

 

Skilmálar um greiðslu og afbókanir

Greiðsla er innt af hendi eftir hvert viðtal og þeir sem eru skráðir í gegnum Köru Connect, þá er upphæð viðtalsins tekin út af kredit- eða debetkortinu sem var gefið upp við nýskráningu og viðkomandi fær kvittun fyrir greiðslunni sem er að finna á heimasvæði hans. Mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði vegna þjónustu sem veitt ef af Heilsu- og sálfræðiþjónustunni. Kvittanir fyrir stéttafélög má finna á heimasvæði skjólstæðings í Köru eða haft er samband við netfangið mottaka@heilsaogsal.is

Greiðslumáti
Hægt er að greiða með kreditkorti eða debetkorti eða greiðsluseðli.

Verð

Öll verð eru í íslenskum krónum og eru verð og upplýsingar um þjónustu birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Við áskiljum okkur rétt til verðbreytinga án fyrirvara.

Afbókanir

Ef ekki er mætt í bókað viðtal er greitt forfallagjald, hálft verð uppgefins verðs.

 

Skjólstæðingur skal tilkynna forföll beint til þess fagaðila sem hann á bókaðan tíma hjá, henda hafi það verið útskýrt þegar viðtalið var bókað. Upplýsingar um forfallagjald og hvert skal tilkynna koma einnig fram í svörum í tölvupósti.

Ekki er hægt að tilkynna forföll í gengum hugbúnaðinn Kara connect.

Ábyrgð þín

Þú berð ábyrgð á að muna eftir að mæta í viðtalstímann þinn.

 

Þú berð sömuleiðis ábyrgð á því að þú hafir næði á meðan þú ert í viðtalstíma hjá sálfræðingnum þínum á stofu eða í gegnum myndfundabúnað og að netsamband þitt og tækjabúnaður sé nægilega góður. 

bottom of page