top of page
Heilsu- og sálfræðiþjónustan_145.jpg
fyrirlestrar__namskeid_edited_edited.jpg

Atferlisráðgjöf

Atferlisráðgjöf er markviss og gagnreynd þjónusta sem styður börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra í að skilja og breyta hegðunarmynstrum sem hafa áhrif á líðan, samskipti og daglegt líf. Unnið er út frá aðferðum atferlisfræðinnar þar sem lögð er áhersla á skýra greiningu aðstæðna og hagnýtar lausnir sem nýtast í daglegu lífi.

Markmiðið er að efla færni, styrkja jákvæða hegðun og draga úr erfiðleikum með raunhæfum og einstaklingsmiðuðum leiðum. 

Atferlisráðgjöf getur verið gagnleg þegar foreldrar eða aðstandendur upplifa að hegðun barns eða ungmennis valdi áhyggjum eða álagi í daglegu lífi, til dæmis þegar:

  • Krefjandi hegðun kemur reglulega upp

  • Erfitt reynist að fylgja fyrirmælum eða halda rútínu

  • Til staðar eru sterkar tilfinningasveiflur eða reiðiköst

  • Áskoranir eru í félagsfærni eða samskiptum

  • Breytingar hafa orðið á líðan eða hegðun

  • Grunur er um ADHD eða einkenni á einhverfurófi

  • Foreldrar óska eftir skýrari verkfærum í uppeldi

Hvernig fer atferlisráðgjöf fram?

Í atferlisráðgjöf er unnið náið með foreldrum og, þegar við á, með barni eða ungmenni. Áhersla er lögð á að skilja hvaða þættir hafa áhrif á hegðunina og hvernig hægt er að styðja við jákvæðari þróun með markvissum aðgerðum.

Ferlið getur meðal annars falið í sér:

  • greiningu á aðstæðum og hegðunarmynstrum

  • ráðgjöf til foreldra um árangursríkar leiðir í uppeldi

  • stuðning við að innleiða skýrar reglur og rútínur

  • þjálfun í félags- og sjálfsstjórnarfærni

  • aðlögun að breytingum eða krefjandi aðstæðum

  • samstarf við skóla eða aðra fagaðila þegar við á

Áhersla er lögð á hagnýtar lausnir sem hægt er að nýta strax í daglegu lífi.

Góð samvinna við foreldra er lykilatriði í atferlisráðgjöf. Þegar við á er einnig unnið í samstarfi við skóla eða aðra fagaðila til að tryggja samræmda nálgun milli heimilis og skóla.
Markmiðið er að skapa skýra og styðjandi umgjörð sem hjálpar barninu að nýta styrkleika sína og efla færni til framtíðar.

Hægt er að óska eftir tíma fyrir aðila í þinni umsjón eða ráðgjöf vegna hegðunarvanda barna og unglinga. Við bjóðum einnig upp á áhorf á heimili eða í skóla, í kjölfarið er farið yfir úrræði vegna vandans með forráðamönnum og/eða kennurum barnsins. 

Mælt er með 50-60 mínútna tíma fyrir fyrsta viðtal.

bottom of page