

Hjóna- og pararáðgjöf
Sambönd fara í gegnum mismunandi tímabil og það er eðlilegt að upplifa áskoranir á leiðinni. Hjónabandsráðgjöf er öruggt rými þar sem pör fá stuðning til að ræða það sem skiptir máli, skilja hvort annað betur og finna leiðir áfram – saman.
Markmið ráðgjafarinnar er að styðja pör í að:
-
Bæta samskipti og hlustun
-
Styrkja traust og nánd
-
Takast á við ágreining á uppbyggilegan hátt
-
Vinna úr erfiðum tímabilum
-
Efla samstarf í daglegu lífi og í foreldrahlutverki
-
Finna sameiginlegar leiðir áfram
Hjónabandsráðgjöf hentar pörum á öllum stigum sambandsins – bæði þeim sem standa frammi fyrir ákveðnum áskorunum og þeim sem vilja styrkja sambandið sitt enn frekar.
Við bjóðum upp á para og fjölskylduráðgjöf hjá Elísabetu Ýrr og Þorleifi Kr. Níelssyni fjölskyldufræðingum.
Mælt er með 50 eða 60 mínútna viðtali í fyrsta tíma.
