top of page
Handshake
einstaklingsmedferd_og_radgjof.png

Sáttarmiðlun

Sáttarmiðlun er faglegt ferli sem styður einstaklinga í að leysa ágreining á uppbyggilegan og virðingarríkan hátt með aðstoð hlutlauss fagaðila. Markmiðið er að bæta samskipti, auka gagnkvæman skilning og finna lausnir sem allir aðilar geta sætt sig við.​

​

Sáttarmiðlun getur nýst í fjölbreyttum aðstæðum, til dæmis þegar:

  • Ágreiningur hefur skapast í nánum samskiptum

  • Samskipti innan fjölskyldu eru erfið

  • Ágreiningur er milli para eða fyrrverandi para

  • Samstarf foreldra þarfnast stuðnings

  • Ágreiningur er milli ættingja eða annarra náinna aðila

  • Samskipti samstarfsaðila eða fólks í sameiginlegum verkefnum hafa orðið erfið

​

Í sáttarmiðlun er lögð áhersla á hlutleysi, virðingu og skýra ramma þar sem allir aðilar fá tækifæri til að tjá sig og vinna sameiginlega að lausnum.

​

Sáttarmiðlun getur verið sjálfstætt ferli eða hluti af heildrænni þjónustu samhliða hjónabandsráðgjöf, fjölskyldumeðferð eða einstaklingstímum hjá Heilsu- og sálfræðiþjónustunni á Akureyri

​​​

bottom of page