top of page
ADHD ráðgjöf og greining

Hjá okkur starfa sálfræðingar í ráðgjöf vegna ADHD einkenna og greiningum á einkennum. Við leggjum áherslu á að vinna með skjólstæðingum okkar í framhaldi af greiningu, að því að efla færni og bjargráð í daglegu lífi til að efla lífsgæði.

Ráðgjöf vegna ADHD
Heilsu- og sálfræðiþjónustan veitir þjónustu fyrir einstaklinga með ADHD einkenni.
Við bjóðum upp á ráðgjöf sem er hægt að bóka á Noona.
Í ráðgjöf verður farið yfir hamlandi einkenni og fundið bjargráð sem hentar hverjum og einum.
Skimun og greining
Heilsu- og sálfræðistofan býður upp á þjónustu þverfaglegs teymis fyrir greiningu ADHD.
Fyrsta skref fyrir skimun er að skráning á biðlista. Næst færðu skimunarlista senda fyrir þig og aðstandendur. Að þeim útfylltum er bókað skimunarviðtal.
bottom of page