

Sáttarmiðlun
Sáttarmiðlun er faglegt ferli sem styður einstaklinga í að leysa ágreining á uppbyggilegan og virðingarríkan hátt með aðstoð hlutlauss fagaðila. Markmiðið er að bæta samskipti, auka gagnkvæman skilning og finna lausnir sem allir aðilar geta sætt sig við.
Sáttarmiðlun getur nýst í fjölbreyttum aðstæðum, til dæmis þegar:
-
Ágreiningur hefur skapast í nánum samskiptum
-
Samskipti innan fjölskyldu eru erfið
-
Ágreiningur er milli para eða fyrrverandi para
-
Samstarf foreldra þarfnast stuðnings
-
Ágreiningur er milli ættingja eða annarra náinna aðila
-
Samskipti samstarfsaðila eða fólks í sameiginlegum verkefnum hafa orðið erfið
Í sáttarmiðlun er lögð áhersla á hlutleysi, virðingu og skýra ramma þar sem allir aðilar fá tækifæri til að tjá sig og vinna sameiginlega að lausnum.
Sáttarmiðlun getur verið sjálfstætt ferli eða hluti af heildrænni þjónustu samhliða hjónabandsráðgjöf, fjölskyldumeðferð eða einstaklingstímum hjá Heilsu- og sálfræðiþjónustunni á Akureyri
