top of page
Heilsu- og sálfræðiþjónustan_145.jpg
fyrirlestrar__namskeid_edited_edited.jpg

Atferlisráðgjöf

Atferlisráðgjöf er markviss og gagnreynd þjónusta sem styður börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra í að skilja og breyta hegðunarmynstrum sem hafa áhrif á líðan, samskipti og daglegt líf. Unnið er út frá aðferðum atferlisfræðinnar þar sem lögð er áhersla á skýra greiningu aðstæðna og hagnýtar lausnir sem nýtast í daglegu lífi.

​

Markmiðið er að efla færni, styrkja jákvæða hegðun og draga úr erfiðleikum með raunhæfum og einstaklingsmiðuðum leiðum. 

​

Atferlisráðgjöf getur verið gagnleg þegar foreldrar eða aðstandendur upplifa að hegðun barns eða ungmennis valdi áhyggjum eða álagi í daglegu lífi, til dæmis vegna:

  • Krefjandi hegðun kemur reglulega upp

  • Erfitt reynist að fylgja fyrirmælum eða halda rútínu

  • Til staðar eru sterkar tilfinningasveiflur eða reiðiköst

  • Áskoranir eru í félagsfærni og samskiptum

  • Breytingar hafa orðið á líðan eða hegðun

  • Grunur er um ADHD eða einkenni á einhverfurófi

  • Foreldrar óska eftir skýrari verkfærum í uppeldi

​​

Hvernig fer atferlisráðgjöf fram?

Í atferlisráðgjöf er unnið náið með foreldrum og, þegar við á, með barni eða ungmenni. Áhersla er lögð á að skilja hvaða þættir hafa áhrif á hegðunina og hvernig hægt er að styðja við jákvæðari þróun með markvissum aðgerðum.

Ferlið getur meðal annars falið í sér:

  • Greiningu á aðstæðum og hegðunarmynstrum

  • Ráðgjöf til foreldra um árangursríkar leiðir í uppeldi

  • Stuðning við að innleiða skýrar reglur og rútínur

  • Þjálfun í félags- og sjálfsstjórnarfærni

  • Aðlögun að breytingum eða krefjandi aðstæðum

  • Samstarf við skóla eða aðra fagaðila þegar við á

​

Áhersla er lögð á hagnýtar lausnir sem hægt er að nýta strax í daglegu lífi.

​​​​​​

Hægt er að óska eftir tíma fyrir aðila í þinni umsjón eða ráðgjöf vegna hegðunarvanda barna og unglinga. Við bjóðum einnig upp á áhorf á heimili eða í skóla, í kjölfarið er farið yfir úrræði vegna vandans með forráðamönnum og/eða kennurum barnsins. 

​

Mælt er með 50-60 mínútna tíma fyrir fyrsta viðtal.

​

Góð samvinna við foreldra er lykilatriði í atferlisráðgjöf. Þegar við á er einnig unnið í samstarfi við skóla eða aðra fagaðila til að tryggja samræmda nálgun milli heimilis og skóla.
Heilsu- og sálfræðiþjónustan_173.jpg
bottom of page