top of page

ACT og núvitund - fjarnámskeið

þri., 24. mar.

|

Google Meet/Kara Connect

Á þessu námskeiði lærir fólk að taka eftir eigin tilfinningum og hugsunum í þeim tilgangi að hlutleysa neikvæð áhrif þeirra í daglegu lífi. Unnið er með það að skoða upp á nýtt sitt eigið hegðunarmynstur í gegnum lífið og mögulega sjá tækifæri til vaxtar með eigin gildi að leiðarljósi.

ACT og núvitund - fjarnámskeið
ACT og núvitund - fjarnámskeið

Tími og staðsetning

24. mar. 2026, 12:00 – 14:00

Google Meet/Kara Connect

Um viðburðinn

Unnið er með ACT  (Sáttar og atferlismeðferð) og núvitund í átt að sátt í daglegu lífi, þrátt fyrir veikindi, áföll, áskoranir eða álag. Praktískar æfingar og verkfæri sem gagnast til að samþykkja eða gangast við núverandi stöðu. Unnið er með gildi og markmið í átt að bættum lífsgæðum og meiri virkni. Kenndar eru ýmsar útgáfur af núvitundaræfingum en núvitund er einn af hornsteinum ACT. Á þessu námskeiði lærir fólk að taka eftir eigin tilfinningum og hugsunum í þeim tilgangi að hlutleysa neikvæð áhrif þeirra í daglegu lífi. Unnið er með það að skoða upp á nýtt sitt eigið hegðunarmynstur í gegnum lífið og mögulega sjá tækifæri til vaxtar með eigin gildi að leiðarljósi.


Markhópur: 

  • Fólk í starfsendurhæfingu sem hefur tekist á við álag, áföll eða langvinn veikindi. 

  • Fyrir þá sem þurfa að aðlagast og gangast við breyttum veruleika t.d. að læra að lifa með heilsufarsvanda eða fóta sig á ný…


Deila á samfélagsmiðlum

bottom of page