
Norðurljós - styrktarverkefni
Athugið búið er að fylla öll pláss sem styrkurinn nær yfir. Mikill fjöldi einstaklinga/barna sótti um.
Við þökkum góðar undirtektir, lokað er fyrir umsóknir í bili.
Ladies Circle (LC) styrkir börn og ungmenni á norðurlandi um viðtöl hjá Heilsu- og sálfræðiþjónustunni.
Verkefnið er í tilefni af gulum september og október sem er tileinkaður vitunarvakningu um geðheilbrigði.
Markmið verkefnisins er að veita börnum og ungmennum fjárhagslegan stuðning til að sækja sér aðstoð og stuðning vegna erfiðra lífsatburða eða annarra aðstæðna sem hafa veruleg áhrif á andlega líðan og velferð. Hver skjólstæðingur fær þrjú viðtöl frítt hjá fagaðila.
Hverjir geta sótt um?
-
Börn eða ungmenni allt að 25 ára aldri
-
Þarf að eiga lögheimili á norðurlandi.
-
16 ára - 25 ára geta sótt um sjálf.
-
15 ára og yngri þurfa staðfestingu forsjáraðila.
.png)