top of page

Dýrmætasta gjöfin


Nú er aðventan hafin og jólamánuðurinn genginn í garð. Mánuður sem margir bíða eftir með eftirvæntingu en hjá öðrum stækkar kvíðahnúturinn í maganum smám saman eftir því sem nær dregur jólum. Foreldrar leggja hugann í bleyti og velta fyrir sér hvað hægt er að gefa börnunum í jólagjöf. Eða að minnsta kosti þeir sem vilja vera mjög tímanlega. Nú fara að hrúgast

inn spurningar frá örvæntingarfullum foreldrum á hina ýmsu Facebook hópa þar sem óskað er

eftir jólagjafahugmyndum. Mörg fyrirtæki eru meira að segja svo elskuleg að setja fram lista yfir

sniðugar gjafir og það getur auðveldað foreldrum valið og auðvitað sparað tíma.


Það virðist ekki lengur vera nóg að kaupa litla fallega jólagjöf heldur þarf hún að vera betri en í

fyrra, þarf að standast kröfur hjá barninu og vinum þess, jafnvel líka hjá foreldrum vinanna.

Kannski hjá samfélaginu öllu? Þetta jólagjafastúss er því alls ekkert grín og pressan er

raunveruleg. Mikil streita getur fylgt því að toppa gjafirnar á milli ára. Foreldrar vilja ekki að

börnin sín verði fyrir aðkasti vegna minni eða lélegri gjafa en hinir krakkarnir fá. Það hafa hins

vegar fæstir það mikið á milli handanna að þeir geti keypt allt sem prýðir óskalistann hjá börnum

sínum og jafnvel þó svo væri, hefðu börnin gott af því að fá alla veraldlega hluti sem hugur

þeirra girnist? Það er líka stór hópur foreldra sem getur ekki keypt jólagjafir fyrir börnin sín og

þessi samanburður og kröfur því átakanlegar fyrir marga. Því er vert að velta fyrir sér, hver

viðhorf okkar til jólagjafa fyrir börnin okkar, eru. Hver er dýrmætasta gjöfin sem við getum gefið

þeim?


Í aðdraganda jólanna, í stressmánuðinum mikla, hvet ég alla til að staldra við og spyrja sig hvað

það er sem skiptir mestu máli í lífinu. Hvernig er forgangsröðunin í lífinu og af hverju er hún

eins og hún er? Þarf að þrífa húsið hátt og lágt, þurfa allir að vera í nýjum jólafötum eða þarf

jólagjöfin að vera betri en í fyrra? Þegar uppi er staðið þá skiptir þetta engu máli. Jólin koma þó

að ló leynist í horni, mylsna sé í sófa eða þótt að ekki sjáist í þvottahúsgólfið fyrir óhreinum

þvotti.


Dýrmætasta gjöfin er nefnilega ekki nýjasti Iphone-inn, ný úlpa eða aðrir veraldlegir hlutir. Það

eru ekki þær gjafir sem börnin muna eftir þegar fram líða stundir. Dýrmætasta gjöfin er samvera.

Að vera til staðar. Hlusta. Gefa af sér. Veita athygli. Vera í núinu. Leggja frá sér snjalltækin.

Tala við börnin. Sýna öllu í lífi þeirra áhuga. Knúsa þau.


Með því að vera til staðar og verja tíma með þeim sáir þú fræjum fyrir komandi samskipti við

börnin þín og samskipti sem þau munu eiga við börnin sín í framtíðinni. Með þessu leggur þú

sterkari grunn að framtíðinni þeirra. Er til eitthvað dýrmætara en það?


Gleðileg jól.


Hildur Inga Magnadóttir er doktorsnemi í Heilbrigðisvísindum og foreldra- og uppeldisráðgjafi hjá Heilsu- og sálfræðiþjónustunni. Hægt er að bóka viðtöl hjá henni í gegnum Noona eða Hafa samband.

bottom of page