top of page
Aron Haukur Hauksson
Sálfræðingur
Aron Haukur útskrifaðist með BSc gráðu í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2020 og MSc gráðu í klínískri sálfræði árið 2022 frá sama skóla. Í námi öðlaðist Aron klíníska reynslu undir handleiðslu reyndra sálfræðinga á Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins og hjá sálfræðiþjónustu Háskólans í Reykjavík. Samhliða námi vann Aron fjölbreytt störf og hefur reynslu af starfi með fjölbreyttum hóp einstaklinga á öllum aldri.
Aron sinnir sálfræðiþjónustu fyrir einstaklinga og pör. Ásamt því sinnir hann greiningu og meðferð á sálrænum vanda hjá fullorðnum og ungmennum. Í starfi sínu beitir Aron aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) við greiningu og meðferð. Aron sækir reglulega handleiðslu reyndra sérfræðinga í sálfræði.
Aron sérhæfir sig í greiningar og meðferðarvinnu við:
- Kvíða
- Þunglyndi
- Lágu sjálfsmati
- Samskiptavanda
- Áfallastreitu
- ADHD
Í meðferðarvinnu notast hann við gagnreyndar aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) og sækir reglulega handleiðslu hjá reyndum sálfræðingum.
bottom of page