Elín Dröfn Þorvaldsdóttir
Atferlisfræðingur
Sendið fyrirspurnir um bókanir á mottaka@heilsaogsal.is
Elín Dröfn útskrifaðist með BSc gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2016. Hún lauk masters námi í hagnýtri atferlisfræði árið 2019 frá Western New England University í Massachusetts, Bandaríkjunum.
Samhliða masters náminu, starfaði Elín í The New England Center for Children. Þar öðlaðist hún reynslu af því að vinna með börnum og unglingum með margþættan náms- og hegðunarvanda. Þar vann hún síðustu ár sem yfirmaður teymis með ábyrgð á greiningu hegðunarvanda, innleiðingu meðferða og þjálfun starfsfólks sem vinna með börnum.
Elín lauk sérfræðivottun í atferlisgreiningu 2021 og veitir nemum í atferlisgreiningu handleiðslu.
Hún hefur störf hjá Heilsu- og sálfræðiþjónustunni í september 2024 og býður börnum, foreldrum og einstaklingum viðtöl.
Elín starfar í staðar- og fjarþjónustu.