Þjónustan okkar
Heilsu- og sálfræðiþjónustan býður upp á fjölbreytta þjónustu hjá fagaðilum úr mismunandi fagstéttum.
Fagteymið hjá Heilsu- og sálfræðiþjónustunni leggur áherslu á samvinnu og virðingu við skjólstæðinga ásamt því að eiga samstarf við aðra í heilbrigðisþjónustu, til að samfella í þjónustu geti verið sem best.
Einnig er veitt bráðaþjónusta fyrir einstaklinga sem hafa lent í áföllum eða eru með mjög aðkallandi sálfélagslegan vanda og þarfnast tíma innan fárra sólarhringa.
Stofan þjónustar allt landið með starfsstöðvar á Akureyri og í Reykjavík en einnig er veitt fjarþjónusta fyrir fólk óháð staðsetningu.
Öll almenn sálfræðiþjónusta er veitt á faglega breiðum grunni fyrir börn og fullorðna. Notaðar eru gagnreyndar aðferðir s.s. Hugræn atferlismeðferð, Acceptance and Commitment Therapy (ACT), Compassion Focused Therapy, EMDR meðferð, Narrative Exposure Therapy (NET), Cognitive Processive Therapy, Dialectical Behaviour Therapy (DBT) o.fl.
Get a Quote
This is a Paragraph. Click on "Edit Text" or double click on the text box to start editing the content.






